Laugardaginn 6. mars 2010 fór Brennómót fram í Íþróttahúsinu í Sandgerði og mættu 9 lið til leiks, en í hverju liði voru um 5-7 manns. Aldurstakmark var 18 ára og ekki var annað að sjá en að allir skemmtu sér konunglega.
Sigurvegari var liðið "Sköpunarverk Guðs" með þeim félögum Ara Gylfa, Helga, Atla, Gísla, Svenna og Hirti Fjeldsted.
Í öðru sæti urðu Bergey, Thelma, Símon, Birkir, Gugga og Jóna.
Og í þriðja sæti urðu Íris Edda, Jói, Eyþór, Karítas og Diljá Aðalheiður
|
|